Tilgangur Landnýtingar ehf. er að nýta og skipuleggja landeignir til aukinnar og hagkvæmari matvælaframleiðslu til útflutnings, einkum ylræktunar á grænmeti í stórum gróðurhúsum.

Landnýting

Landnýting ehf. var formlega stofnað af þeim Halldóri Pálssyni og Þorkeli Sigurlaugssyni. Landnýting leggur áherslu á arðsama fjárfestingu og rekstur á landeignum á Íslandi þar sem auka má framleiðslu á matvælum og öðrum afurðum og þjónustu,- allt til að auka útflutningstekjur þjóðarinnar með sjálfbærni, lágmarks kolefnisspor og bætta nýtingu auðlinda landsins að leiðarljósi.

Stefnt er að því að eignarhald verði að meirihluta íslenskt.

Lögð verður áherslu á viðskiptaþróun, samstarf ólíkrar atvinnustarfsemi, nýta nútíma þekkingu, sjálfvirkni og iðnaðarferla til að fá sem mest út úr auðlindumlandsins og styrkja þar með samkeppnishæfni þjóðarinnar.

Meðal samstarfsaðila eru:

Íslandsstofa

Landbúnaðarháskóli Íslands

WUR – Wageningen University & Research

Orkidea

Stefnumál

  • Stefna að betri nýtingu landeigna.
  • Auka nýtingu og arðsemi þeirra með virkri viðskiptaþróun og jákvæðri þróun í rekstri.
  • Auka samlegðaráhrif ólíkra greina eins og landeldis og ylræktar, þar sem tækifæri felast í samnýtingu auðlinda eða aukaafurða til hagsbóta fyrir báða aðila.
  • Ávallt verði horft til umhverfissjónarmiða, sjálfbærni, kolefnisjöfnunar og styrkleika Íslands þar sem endurnýjanlegar auðlindir, náttúra og þekking skapa einstök verðmæti til útflutnings á matvælum og öðrum afurðum svo og ferðaþjónustu.

Teymið

Halldór Pálsson

Gísli H Halldórsson

Stjórnarformaður

Gísli er viðskiptafræðingur frá HÍ með meistaragráða í auðlindastjórnun frá HA. Hann hefur mikla stjórnunarreynslu sem fyrrv. bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og Svf. Árborgar en starfar nú sem fjármálastjóri hjá Vatnajökulsþjóðgarði.

gislihh@landnyting.is

Halldór Pálsson

Óttarr Makuch

Framkvæmdastjóri

Óttarr er reyndur stjórnandi með víðtæka reynslu úr viðskiptum og stjórnmálum.

ottarr@landnyting.is

Halldór Pálsson

Halldór Pálsson

Stofnandi og stjórnarmaður

Halldór er reyndur frumkvöðull og hefur staðið að fyrirtækjum á Íslandi og fleiri löndum í Evrópu.

www.halldorpalsson.com
halldor@landnyting.is

Þorkell Sigurlaugsson

Þorkell Sigurlaugsson

Stjórnarmaður

Þorkell er viðskiptafræðingur með mikla reynslu af atvinnurekstri og sem stjórnarmaður í smáum sem stórum fyrirtækjum.​

www.thorkellsig.is
thorkell@landnyting.is

Halldór Pálsson

Hrafnhildur (Krumma) Jónsdóttir

Stjórnarmaður

Víðtæka menntun og reynslu sem framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og ráðgjafi fyrir stór og smá fyrirtæki í alþjóðlegri starfsemi. Er búsett bæði í Frakklandi og á Íslandi.

Þorkell Sigurlaugsson

Jón S. Magnússon

Verkefnastjóri og stjórnarmaður

Jón er reyndur stjórnandi í verslunar og iðnfyrirtækjum.

jon.s@landnyting.is

Þorkell Sigurlaugsson

Esteban Baeza Romero

Ráðgjafi

Yfirumsjón með framleiðslu og markaðsstjórn PhD í Agronomic Engineering, áður í Wageningen háskólanum  með áherslu á gróðurhús og Physiology and Protected Crop Technology at IFAPA. 10 ára, rannsókn í: Greenhouse Technology Department of the Experimental Station Las Palmerillas​.

Þorkell Sigurlaugsson

Nína Halldórsdóttir

Sérfræðingur og ráðgjafi

Nína er menntaður sáttamiðlari, einstaklings- og teymisþjálfi með B.A. í sálfræði og diplóma gráðu í jákvæðri sálfræði.

nina@landnyting.is

Þorkell Sigurlaugsson

Sergio Moreno

Gæðastjóri

Agricultural Engineer PhD in Biotechnology and Industrial Bioprocesses.​

Nokkrir ráðgjafar

Þorkell Sigurlaugsson

Dr. Ragnheiður Inga Þórisdóttir

Rektor LBHÍ
Þorkell Sigurlaugsson

Áshildur Bragadóttir

Þróunarstjóri LBHÍ
Halldór Pálsson

Jens Þórðarson

Framkvæmdastjóri Geo Salmo landeldi
Þorkell Sigurlaugsson

Sigurður Markússon

Framkvæmdastjóri þróunar hjá Sæbýli hf.
Halldór Pálsson

Árni Bragason

Forstjóri Landgræðslu ríkisins
Þorkell Sigurlaugsson

Jón Hjaltalín Magnússon

Frumkvöðull

Merki

Þrír hringir í merki félagsins endurspegla mikilvægi gróðurmoldar, grænnar ræktunar og vatns sem uppsprettu alls lífs og hringirnir það hringrásarhagkerfi sem félagið vill leitast við að byggja sína starfsemi á.

Verkefni

Framtíðarsýn stofnenda var sú að gera mætti átak í bættri nýtingu auðlinda þess mikla landrýmis sem þjóðin býr yfir. Loftslagsbreytingar, fjölgun mannkyns, aukin matvælaþörf og fjölgun ferðamanna kallar bæði á ógnanir og ekki síður tækifæri fyrir Íslendinga til að auka útflutningstekjur.

Markmiðið er að fá til liðs við félagið sterka hluthafa til að skapa aflmikið félag til að takast á við fjölbreytilega verkefni á þessu sviði.

Landnýting mun taka stórt skref til að nýta möguleika sem íslenskur landbúnaður hefur til framleiðslu á hágæða matvælum til útflutnings.

  • Í fyrsta skrefi einbeitum við okkur að ylrækt til ræktunar á tómötum eða t.d. agúrkum, og öðrum afurðum og nýtum, reynslu og nýjustu tækni og aðferðir:
  • Nútíma – VENLO – hátækni gróðurhús og nútíma AI –Tölvustýrð ræktun
  • Sjálfvirkni við plöntun og uppskeru
  • Náttúruleg frjóvgun
  • Engin skordýra eða sjúkdóma eitur
  • Vökvun með hreinu (drykkjar) vatni
  • Umhverfisvæn orka

Hafa samband

Landnýting ehf.
Gróska
Bjargargata 1
102 Reykjavík
landnyting@landnyting.is
+(354) 620-6222
kt. 680622-1240